Published on April 20, 2009
Published on April 2, 2009
no hear.. eins og maður segir … 
Þorbjörg er orðin 2ja ára altalandi syngjandi leikskólastelpa. Það voru haldin 2 afmæli henni til heiðurs og var mikið fjör hér á Svalbarði. Valur “skrapp” í 3ja vikna vinnuferð.
Við erum komin með fokheldisvottorð og styttist óðum í að við flytjum í fjóluásinn
. Það er búið að setja upp og ganga frá næstum öllum inniveggjum, pípulagnavinnan að klárast og næst á dagskrá er spörslun og málun og þá er hægt að henda upp innréttingunum.
Þar til síðar….
Published on January 22, 2009
hæhó, Þorbjörgu gengur orðið mjög vel í leikskólanum. Kveður mig með kossi og hleypur til kennarana
Þær systurnar eru mjög ánægðar þarna saman. Svo er þetta mjög þægilegt að fara bara á einn stað með þær báðar. Ég get þó verið í dágóðan tíma að ná þeim báðum í fötin til að fara heim, held að ég hafi verið fljótust 15 mín.
Annars erum við að flytja úr setberginu og uppá holt núna á laugardaginn. Tímabundni samningurinn okkar rann út og fengum við tækifæri til að búa í einbýlishúsi frænku minnar og ekki var hægt að hafna því. Eini ókosturinn er sá að ég er grasekkja og Valur verður því ekki hér til aðstoðar við niðurpakkningu og kassaburð.
Fjóluásinn gengur bara vel, þeir eru langt komnir með að klæða húsið og svo er innistiginn að klárast og þá byrja pípararnir að setja gólfhitann
Stefnt er á að flytja inn í sumar…
Published on January 7, 2009
Það leika allir saman..
Þorbjörg er ekki alveg sú hugrakkasta þegar kemur að aðlögun í leikskólanum. Fyrsti dagurinn var í gær og var vel passað uppá að mamma færi hvergi á meðan hún kíkti á dótið og krakkana. Dagur 2 var í morgun. Litla músin mín þorði varla að borða morgunmatinn sinn með hinum krökkunum og þurfti að sitja í fanginu á mömmu sinni. Svo var farið að leika en alltaf tékkað á hvort að mútta gamla væri ekki örugglega þarna í augnsýn.. Ég reyndi tvisvar að segja henni að ég ætlaði að fá mér kaffi þá varð mín alveg snældusnar.. hljóp til mín og gólaði “út út út”.. og reyndi að opna hurðina og komast út með mér. ég þurfti því að sniglast fram án þess að tilkynna henni það.. þá varð hún ekki svo miður sín þegar hún sá mig hvergi. Á morgun verður valur sendur með hana og þá verður hún vonandi aðeins hugrakkari og vinkar honum bless :p Held að mamman sé að gera þetta að meira máli en það er.
Published on December 18, 2008
Þorbjörg er komin með uppáhaldsfrænku, Jóhönnu Ósk. Hún gisti hjá okkur í nokkrar nætur og Þorbjörg kallar hana “Jói” á dáldið erfitt með að segja Jóhanna Ósk. En við fórum í smá jólaleiðangur um síðustu helgi. Fórum í Heiðmörk að finna jólatréið og í bílnum þá var afar vinsælt að kalla “jói - dudda!” og átti Jóhanna þá að setja snuðið hennar Þorbjargar á sinn stað. Núna vaknar litla krúttið á hverjum morgni og kallar á Jói Jói. 
Núna eru örfáir dagar eftir hjá dagmömmunni þessi vika og 2 dagar í næstu viku og þá er litla skvísan hætt og fer næst á leikskólann
Fjóluásinn tók kipp núna í desember. Allt á fullu þar, menn að klæða húsið að utan, píparar að vinna inni og smiður (Erlingur álfakóngur) að smíða stigann inni.. Ég fylgist grannt með gangi mála í gegnum svefnherbergisgluggann okkar þar sem ég vinn heima þennan mánuðinn. Já ég er s.s. búin að fá minn hluta af kreppunni og þarf að leita mér að nýrri vinnu á nýju ári.
Aldrei að vita nema myndir gægjist hingað inn við e-ð gott tækifæri
Published on December 10, 2008
Já húsmóðirinn átti afmæli í byrjun desember, orðin 32 ára og yngist með hverju árinu sem líður. Valur gerðist svo sætur að bjóða mér í mat á Vox og svo í bíó 
Bergþóra er komin í jólafíling og greinilegur munur frá því í fyrra þegar hún varla fattaði jólin.. Núna er hún búin að búa til lítin skó handa jólasveininum en heldur nú samt að hann eigi að taka skóinn …hmm..
Þær systur eru ansi duglegar að fara í fötin (þorbjörg fær að sjálfsögðu aðstoð..) á morgnanna þegar ég lofa þeim súkkulaði úr jóladagatalinu
Published on November 19, 2008
Og það er komið ljós.. allavega nokkrar ljósaperur uppí fjóluásnum
Heitt og kalt vatn og rafmagn tengt inní kofann svo núna fer allt að gerast… eða svona næstum því.
Stelpurnar eru hressar að venju, Þorbjörg er farin að hafa ansi sterkar skoðanir og lætur sko engann vaða yfir sig. Hún er farin að tala helling, segir t.d. tannkrem (hljómar eins og klanglee) heimtar að fara á koppinn og klósettið og vill helst vera bleyjulaus heima hjá sér. Bergþóru finnst afskaplega gaman á leikskólanum og hlakkar helling til að fá litlu systur þangað (styttist óðum í það..) Nýjasta hjá Bergþóru er að heimta að fara í pilsi eða kjól í leikskólann. 
Já það er sko aldrei lognmolla á heimilinu.
Published on October 17, 2008

Komnar inn fleiri myndir
Published on October 2, 2008
Bergþóra kom heim af leikskólanum og er búin að vera syngja öxar við ánna.. Við ákváðum því að fletta textanum upp (maður getur ekki munað öll lög orðrétt!) og svo fórum við að syngja.. nema þegar við erum búin að segja “vorri þjóð..” þá gellur í Bergþóru “Drekkum kók” ægilega fyndið
Það fyndna er að Þorbjörg var farin að segja “drekkum kók” og skellihlæja líka
Annars er þorbjörg farin að gera sig alltaf meira skiljanlegri.. henni finnst skyr mjög gott og bendir í sífellu á ísskápinn til að fá svoleiðis. (hljómar reyndar eins og gyyyyr) svo er hún alveg ótrúlega þrjósk og ákveðin. Er svona að spá hvort að þetta sé e-ð yngra systkina syndróm..
Að húsinu.. þá er búið að steypa þakið (gert í gær) og þeir eru að raða gluggunum og hurðunum í húsin. Næst á að leggja hitann í gólfið svo við getum þá farið að kynda upp pleisið. Næst hjá okkur er að fara að velja innréttingar, hurðar og parket.. hljómar einfalt ekki satt? En hvað ef manni langar í eldhús með hvíttaðri eik, hurðar úr hlyn og hvíttaðan ask á gólfið! kannski ekki alveg það sem passar saman
Allar tillögur vel þegnar..
Published on September 17, 2008
Hæ og hó, allt gott af okkur að frétta. Stelpurnar eru hressar og kátar og enn sem komið er ekki dottnar í haustpestir. Þorbjörg er ekki komin á leikskóla ennþá og gerist væntanlega ekki fyrr en pláss losnar á Hlíðarenda (einhver að flytja takk takk..
)
Skruppum í Kollabúðir fyrstu helgina í september þar sem ég veiddi og hinir týndu ber. Vorum nokkuð heppin með veður og stelpurnar voru mjög ánægðar með ferðina. Missti 2 væna laxa en kenni öðrum en sjálfum mér um það..
Tengdamamma varð 50 ára 11. september og hélt rosa flotta veislu með leikjum og góðum mat.
Húsasmíðin gengur svona lala… núna er búið að steypa alla veggi og þeir eru að leggja mótin til að geta steypt þakplötuna. Næst hjá þeim er að rusla blessuðu gluggunum/hurðunum inn og þá má fara halda partý (Reisugilli) (hef aldrei skillið þetta orð “gilli”..) En vonandi náum við að flytja inn fyrir afmælið hans Vals á næsta ári
Nema við flytjum í það hálfklárað… ææi kemur allt í ljós
Published on August 29, 2008
.. á þó eftir að commenta á þær
en allavega haugur af nýjum myndum.
Published on August 27, 2008
Jæja, tókst að setja inn 2 ný albúm.. janúar og flórídaferð.. og jú bætti e-u inní fjóluás albúmið…
Hefði sett fleiri en picasa fór í verkfall…
Published on August 22, 2008
Já litla maísbaunaæxlið úr þumalputtanum mínum er farið. Það var tekið á skurðstofu undir handleiðslu handbæklunarlæknis, svæfingarlæknis og 2ja hjúkrunarfræðinga. Ég var nú bara deyfð.. en betra að vera með svæfingarlækninn svona just in case… Núna er ég bara með skurð á puttanum og 4 sauma ásamt góðum plástri. Ótrúlegt hvað það er erfitt að vera þumalputtalaus.. prófiði t.d. að hneppa tölu.. eða borða með hnífapörum..
Annars endurheimti ég loksins dætur mínar, en þær koma í dag að vestan eftir vikuferð í sumó. Það verður sko aldeilis gaman að knúsa litlu dúllurnar mínar aftur
Published on August 18, 2008
Litli frændi kom loksins í heiminn eftir langa bið þann 14.ágúst kl 20:41 55 cm og 4760 gr.
Hann er með algjörar bollukinnar og er víst rosa þægur og góður. Hann á líka fullt af góðum systkinum sem dekra víst við hann. Ég náði því lengdargiskinu réttu og er því miður búin að missa þyngdarmetið mitt (Þorbjörg var 4740..)
Annars gekk ágætlega í veiðinni, ég hélt að ég færi með öngulinn heim í rassinum en náði að landa einum 7 punda laxi klukkustund fyrir lokun
jíbbíjei.. Annars hef ég sjaldan hlegið eins mikið og í þessari ferð.. Það voru svo eitilhressir karakterar í kringum mig að ég er með harðsperrur af hlátri!.
Published on August 14, 2008
Þorbjörg tekur þvílíkum framförum að hún er sífellt að koma okkur á óvart. Hér kemur smá listi af orðum (aðallega til minnis fyrir okkur.)
Mamma (segir nú stundum pabbi)..
Dudda
Ava (afi) - amma
Élíka (ég líka.. -> má ég fá -> ég vil fá meira -> ég vil fá eins og bergþóra)
Nammi (meiri mat takk)
Takk
Nenna (renna)
Nei
Skugga (skuggi - notað yfir flest loðin gæludýr)
Man ekki meira í bili.. en ég var nú komin með hátt í 20 orð.. aldeilis sem tíminn líður hratt..
Annars er Bergþór bróðir og Ásdís alveg að fara að fá barn númer 5.. þau eru as we speak uppá fæðingardeild. Ég held að þetta verði fjórða stelpan og að hún muni vera ca 4570 gr 55 cm og með eldrautt hár
Læt vita hvernig ágiskið kemur út þegar hún lætur sjá sig.